Öryggið
Microsoft 365
Ertu í öruggum höndum?
Öryggi upplýsinga skiptir okkur miklu máli. Í Microsoft 365 er fjöldi lausna sem nota má til að auka öryggi.
- Auðkenni og aðgangsstjórnun
- Öruggt aðgengi notendabúnaðar
- Öryggi upplýsinga
- Skipulagt eftirlit
Stýra þarf öryggi varðandi aðgengi starfsmanna, aðgengi ólíkra tækja og þeirra upplýsinga sem vistaðar eru í kerfinu.
Tryggja þarf að óviðkomandi aðilar komist ekki í gögnin og draga úr þeirri áhættu að starfsmenn geri mistök í meðhöndlun upplýsinga.
Sérfræðingar Sensa veita ráðgjöf við val á öryggislausnum Microsoft 365, uppsetningu, eftirliti og stillingum. Hjá þeim fyrirtækjum sem eru nú þegar byrjuð að nýta sér þjónustu Microsoft 365 er farið yfir núverandi uppsetningu á umhverfinu og lögð fram tillaga að útbótum.
Nánari upplýsingar um öryggislausnir Microsoft 365 má sjá á vefsíðu Microsoft Enterprise mobility + security
Margþátta auðkenning eða MFA
- Microsoft 365 býður upp á margvíslegar öryggisstillingar. Einn af mikilvægustu öryggisþáttunum til að vernda upplýsingar í skýinu er notkun margþátta auðkenningar.
Hvað er margþátta auðkenning?
- Margþátta auðkenning (Multifactor Authentication eða MFA) er þegar þú skráir þig inn á hefðbundinn hátt með notandanafni og lykilorði en þarft jafnframt að staðfesta á annan hátt að þú sért sá sem þú segist vera.
Hvernig virkar margþátta auðkenning?
Skilaboð eru send í símann þinn sem þú þarft að staðfesta til að innskráningin gangi. Síminn þarf því að vera við hendina. Með þessu móti nægir ekki að vera með notendanafn og lykilorðið heldur þurfa óprúttnir aðilar líka að vera með síma viðkomandi.
Hægt er að velja hvort skilaboðin komi í formi SMS, símtals eða í app sem sett er upp á símann.
Mismunandi útgáfur margþátta auðkenningar
Öllum Microsoft 365 leyfum fylgir MFA. Ef auðkenningin á að ná út fyrir Microsoft 365 umhverfið er mikilvægt að skoða aðrar leiðir sem í boði eru. Microsoft býður upp á “on-premises” lausn af MFA, en ef tryggja þarf umhverfi með blöndu af “on-premises” og skýjalausnum eru aðrar lausnir í boði sem gætu hentað betur.
Sensa veitir ráðgjöf varðandi margþátta auðkenningu
Nánari upplýsingar um hvernig tveggja þátta auðkenning Microsoft virkar má finna hér og upplýsingar um ólíkar útgáfur Microsoft lausnarinnar finnur þú hér.
Átt þú afrit?
Stutta svarið er já! – Microsoft ber ekki ábyrgð á afritun gagna.
Microsoft sér til þess að gögnin séu aðgengileg og að þau séu margföld (e. replication). Ef gagnatap á sér stað t.d. vegna mistaka starfsmanns eða ef vírus skemmir gögnin þín þá endurspeglast sú breyting yfir á aðra vistunarstaði. Microsoft hefur í sumum tilfellum getað endurheimt hluta af gögnum en ábyrgist ekki að slíkt sé hægt.
Microsoft ber ábyrgð á:
- Uppitíma og aðgengi að skýjaþjónustunni
- Að eiga auka eintak af gögnum viðskiptavina (e. replication)
- Aðgengi að ruslafötu sem gerir endurheimt stakra skráa mögulegar í takmarkaðan tíma
Viðskiptavinur ber ábyrgð á:
- Aðgangsstýringum notenda og aðgengi þeirra að upplýsingum
- Öruggri afritun gagna
- Að uppfylla reglugerðir og kröfur eftirlitsaðila (e. compliance & governance)
Frekari upplýsingar um þjónustu Sensa á sviði öryggismála finnur þú hér.