- LAUSNIR OG ÞJÓNUSTA
- UM SENSA
- FYRIRTÆKIÐ
- MANNAUÐUR
- HAFA SAMBAND
- English
Menu
Power BI lausnin frá Microsoft er frábær og auðveldar þér að halda utan gögn. Mikilvægi gagna í rekstri nútímafyrirtækja er síst ofmetið. Við getum aðstoðað þig við að koma upp þessari frábæru lausn og auðveldað þér að taka gagnadrifnar ákvarðanir.
Gott utanumhald gagna og sýnileiki þeirra er mikilvægur stuðningur við skipulag og stjórnun. Microsoft Power BI gerir endanotendum kleift að lesa inn gögn úr fjölda kerfa og blanda þeim saman á skipulagðan hátt til að veita þeim sjálfum innsýn í þróun og framtíðarhorfur.
Margir hafa hingað til treyst á Excel til að gera slíkar greiningar en með þessum frábæra hugbúnaði frá Microsoft og góðum vinnureglum má ná lengra. Auðvelt er að samþætta þessa lausn við Microsoft 365 eða Dynamics.
Sensa getur lagt grunninn að vel heppnaðri innleiðingu og leiðbeint notendum við áframhaldandi þróun. Við höfum á að skipa mörgum sérfræðingum í gagnagreiningu og getum aðstoðað þig við að ná því besta út úr gögnunum þínum.