Skip to content

Vefkökur

office 365 öryggi

Þegar farið er inn á vefsíðu Sensa vistast vefkökur (e. cookies) í tölvu eða önnur snjalltæki notandans. Vefkökur eru litlar textaskrár sem eru notaðar til þess að tryggja sem bestu upplifun af vefsvæðunum fyrir notendur og greina heimsóknir á vefsvæðin.

Tegundir af kökum á vefsvæði Sensa
Sensa vinnur með nokkrar tegundir af kökum á vefsvæðum sínum.
Sumar þeirra eru svokallaðar setukökur (e. session) á meðan aðrar eru viðvarandi kökur. Setukökur gera vefsvæðunum kleift að tengjast aðgerðum notanda á meðan hann er á vefsvæðinu og eyðast setukökur almennt þegar notandi fer af vefsvæðunum. Viðvarandi kökur vistast hins vegar á tölvu notanda og muna þannig val eða aðgerðir notanda á vefsvæðunum.
Vefkökur eru ýmist fyrstu aðila kökur eða þriðju aðila kökur. Það ræðst af léni vefsvæðanna sem gerir vefkökuna hvort hún telst fyrstu- aðila eða þriðju-aðila vefkaka.

Grundvöllur fyrir notkun á kökum
Þær vefkökur sem Sensa notar eru að hluta til nauðsynlegar svo unnt sé að nota vefsvæðið eins og til er ætlað og til að tryggja öryggi samskipta sem gæti farið fram í gegnum vefsvæðið. Slíkar vefkökur eru forsenda fyrir notkun á vefsvæði Sensa og byggir notkun þeirra því á lögmætum hagsmunum Sensa.
Aðrar vefkökur sem Sensa gæti unnið með byggja á samþykki notanda, enda eru þær ekki unnar á grundvelli lögmætra hagsmuna eða eru forsenda fyrir notkun vefsvæðisins. Slíkar vefkökur gætu engu að síður auðveldað notendum vefsvæðisins að nota þau, t.d. varðandi stillingu tungumáls, og kann það að hamla virkni vefsvæðisins að einhverju leyti séu þær ekki samþykktar. Notkun á þriðju aðila kökum byggir jafnframt á samþykki notanda.
Þegar notandi heimsækir vefsvæðið í fyrsta skipti birtist borði þar sem notandi er beðinn um að samþykkja þær valfrjálsu vafrakökur sem vefsvæðið notast við. Það er hvenær sem er hægt að afturkalla það samþykki með því að loka á kökur á vefsvæðinu eða eyða þeim úr vafra notanda.
Hægt er að breyta stillingum á flestum vöfrum þannig að þeir taki ekki á móti vefkökum. Einnig er hægt að eyða vefkökum með einföldum hætti. Nánari upplýsingar um hvernig það er gert má finna á heimasíðum flestra vafra.

Vefkökur þriðja aðila
Sensa notar vefkökur sem tilheyra þriðju aðilum á vefsvæðum sínum (t.d. Google og YouTube). Þessir þriðju aðilar geta komið fyrir vefkökum í vöfrum notenda og með þeim hætti nálgast upplýsingar um heimsóknir á vefsvæðin.
Slíkar þjónustur eru einkum notaðar til að afla vitneskju um notkun á vefsvæðinu og greina hvaða efni fólk hefur áhuga á að skoða. Með þeim hætti getur Sensa betur aðlagað vefsvæðið að þörfum notenda.
Þær upplýsingar sem Sensa notar frá slíkum þriðju aðilum eru:

  • fjöldi gesta og fjöldi innlita frá gestum
  • lengd innlita gesta
  • hvaða síður innan vefsins/vefsvæðisins eru skoðaðar og hversu oft
    tegund skráa sem sóttar eru af vefnum (t.d. pdf- eða doc-skjöl)
  • hvaða stýrikerfi eða gerð vafra er notað til að skoða vefsvæðin
  • hvaða leitarorð af leitarvélum vísa á vefsvæðin
  • hvaða villuskilaboð birtast og hversu oft
    hvenær dagsins vefurinn er skoðaður
  • Nánari upplýsingar um hvernig þriðju aðilarnir nota vefkökur má nálgast á vefsíðum þeirra.

Sensa ehf. notar vefkökur (e.cookies) m.a. til að bæta vefinn og aðlaga betur að þörfum notenda. Nánari upplýsingar hérna.