- LAUSNIR OG ÞJÓNUSTA
- UM SENSA
- FYRIRTÆKIÐ
- MANNAUÐUR
- HAFA SAMBAND
- English
Menu
Að velja réttu leiðirnar í skýjavegferðinni getur verið yfirþyrmandi, svo margir eru möguleikarnir. Sérfræðingar Sensa eru tilbúnir að aðstoða þig við að velja réttu leiðina fyrir þig og þitt fyrirtæki og hrinda henni svo í framkvæmd á öruggan og ábyrgan hátt.
Sensa, ásamt samstarfsaðilum, mun sjá um innleiðingu eða flutningi í skýið í samræmi við þínar viðskiptaþarfir núna og til framtíðar. Flutningsþjónusta Sensa innifelur rýni á núverandi umhverfi, skipulagning, prófun ásamt flutningi og er verkefnastýrt frá upphafi til enda.
Að færa þjónustur í almenna skýjaumhverfið útilokar ekki endilega þörfina á að stýra og viðhalda umhverfinu. Sensa getur veitt nauðsynlegan stuðning fyrir þínar þjónustur í skýinu með þróaðar eftirlitslausnir sem tengja staðbundnar uppsetningar við þjónustur í skýinu og viðbragðsteymi sem bregst við uppákomum.
Ein af afleiðingum hybrid skýjalausna er að fyrirtæki geta lent í því að fá fjölda reikninga frá mörgum mismunandi birgjum. Í gegnum Sensa getur þú sameinað reikninga fyrir Microsoft Azure, Amazon Web Services, Google Cloud og hýsingarþjónustur Sensa sem gefur þér heildarsýn yfir IT innviðakostnaði, allt á einum reikningi.