Stefnur
Upplýsingaöryggisstefna
Sensa er með alþjóðlega öryggisvottun – ISO/IEC 27001:2013 Vottunin nær yfir afhendingu stafrænnar þjónustu og þjónusta við viðskiptavini.
Upplýsingastefna
Upplýsingastefnan styður við upplýsingaöryggisstefnu. Upplýsingastefnan tekur til allra upplýsinga á rafrænu- og pappírsformi sem tengjast rekstri og hlutverki Sensa.
Persónuverndarstefna
Persónuverndarstefna fjallar um hvernig Sensa vinnur með persónuupplýsingar viðskiptavina og hvernig Sensa leggur sig fram við að tryggja öryggi þeirra.
Mannauðs- og jafnréttisstefna
Stefnunni er ætlað að tryggja að unnið sé í samræmi við lög um jafna stöðu óháð kyni. Með henni skal tryggt að félagið fylgi lögum, reglugerðum og samningum sem snerta jafnréttismál á hverjum tíma. Stefnan er órjúfanlegur hluti af jafnlaunastefnu félagsins.
Jafnlaunastefna
Mannauðs- og jafnréttisstefna Sensa. Stefnan er órjúfanlegur hluti af mannauðs- og jafnréttisstefnu félagsins.
Jafnréttisáætlun
Jafnréttisáætlun er sett fram meðal annars til að tryggja að unnið sé í takt við þær kröfur sem fram koma í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og til að stuðla að stöðugum umbótum. Stefnan er órjúfanlegur hluti af mannauðs- og jafnréttisáætlun félagsins.
Siðareglur
Siðareglur Sensa eru lýsingar á góðum starfsháttum er kemur að vinnustaðnum, meðferð upplýsinga, hagsmunaárekstrum sem og umhverfi og öryggi.
Stjórnháttaryfirlýsing
Stjórnarhættir Sensa taka mið af lögum um einkahlutafélög, samþykktum félagsins, starfsreglum stjórnar og almennum leiðbeiningum um góða stjórnarhætti.