Skip to content

Upplýsingastefna

Útg. 2.0. – 12. maí 2022

Tilgangur

Stefnan nær utan um gögn í eigu Sensa. Upplýsingastefnan styður við upplýsingaöryggisstefnu.

Upplýsingastefnan tekur til allra upplýsinga á rafrænu- og pappírsformi sem tengjast rekstri og hlutverki Sensa.

Stefna

Sensa ber ábyrgð á flokkun, meðferð, varðveislu og grisjun gagna fyrirtækisins í samræmi við upplýsingaöryggisstefnu, verklagsreglu og samninga við viðskiptavini. Sensa notar upplýsingar af ýmsu tagi í daglegum rekstri og hagar umgengni í samræmi við ofangreinda ábyrgð.

Markmið

  • Að upplýsingar séu aðgengilegar starfsmönnum óháð staðsetningu, tíma og tæki.
  • Að hámarka öryggi og réttleika upplýsinga.
  • Upplýsingar eru geymdar á miðlægum stað og ekki skal margvista upplýsingar.
  • Skipulag og verklag samræmt.
  • Að starfsmenn finni upplýsingar með lítilli fyrirhöfn.
  • Allar upplýsingar sem starfsmenn vinna með séu á rafrænu formi.
  • Að undirrituð skjöl séu á rafrænu formi.

Framkvæmd og ábyrgð

Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á upplýsingastefnu Sensa og framkvæmdastjórn tryggir framgang hennar. Öryggisstjóri ber ábyrgð á framsetningu og daglegri umsjón stefnunnar ásamt þjálfun starfsmanna.
Starfsmenn bera ábyrgð á daglegri meðferð upplýsinga í samræmi við stefnu og markmið.

Sensa ehf. notar vefkökur (e.cookies) m.a. til að bæta vefinn og aðlaga betur að þörfum notenda. Nánari upplýsingar hérna.