Skip to content

Sensa kynnir nýtt svið – Viðskipti og vöxtur

Nýtt svið hefur tekur til starfa hjá Sensa með það að markmiði að efla þjónustu við viðskiptavini. Með breytingunum er lögð aukin áhersla á skýrt skipulag, aukna samvinnu og betri þjónustu við viðskiptavini félagsins.

Nýja sviðið ber nafnið Viðskipti og vöxtur og stýrir Þröstur Sigurjónsson því í hlutverki framkvæmdastjóra. Þröstur býr yfir áratuga reynslu í upplýsingatækni og hefur gegnt lykilhlutverkum hjá Sensa og forverum félagsins. Hann hefur leitt tæknisvið Basis, sinnt hlutverki tæknistjóra Sensa og nú síðast stýrt viðskiptaþróun Sensa. Í nýju hlutverki mun Þröstur leiða sölu, markaðsmál og viðskiptaþróun með það að markmiði að styðja við vöxt félagsins og skapa aukið virði fyrir viðskiptavini.

Jafnframt hafa verið skipaðir þrír deildarstjórar innan sviðsins:

Ingvar Linnet verður deildarstjóri viðskiptaþróunar og mun hann leiða viðskiptaþróun félagsins. Ingvar hefur starfað hjá Sensa í 7 ár í ólíkum hlutverkum, fyrst sem viðskiptastjóri en síðar vörustjóri hýsingar, reksturs & skýjalausna. Áður var Ingvar rekstrarstjóri hjá Hringiðunni og þar áður deildarstjóri Norpost. Ingvar er með B.Sc. í viðskiptafræði og með M.Sc. gráðu í Fjármálum fyrirtækja.

Gunnar Ólafsson tekur við starfi deildarstjóra sölu og viðskiptastýringar hjá Sensa. Áður var Gunnar sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs hjá Þekkingu. Lengst af á sínum starfsferli hefur Gunnar starfað við sölu og stjórnun söluteyma sem og uppbyggingu þeirra. Gunnar var meðstofnandi Netgíró þar sem hann stýrði sölu og viðskiptaþróun um árabil. Gunnar er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og með MBA gráðu frá Copenhagen Business School, auk IPMA-D vottunar í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands. 

Eydís Eyland verður deildarstjóri markaðsmála og mun leiða markaðsmál félagsins. Eydís var ráðin markaðsstjóri Sensa 2024 en áður starfaði hún sem markaðsstjóri OK og þar á undan hjá Promennt. Eydís hefur víðtæka reynslu á sviði markaðs- og samskiptamála en hún hefur einnig starfað á Viðskiptablaðinu, sem ritstjóri Eftir vinnu. Eydís er með B.Sc. í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum og M.Sc. í Verkefnastjórnun. 

Þessi skipan í lykilstöður er stórt og mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Sensa. Þröstur, Ingvar, Gunnar og Eydís hafa sýnt frábæra hæfni og metnað í sínum störfum og búa yfir þeirri reynslu og innsýn sem þarf til að vera í leiðandi hlutverkum hjá félaginu inn í næsta vaxtarskeið. Með þessum breytingum styrkjum við stoðir okkar og getum svarað þörfum viðskiptavina enn betur,“ segir Guðmundur Stefán Björnsson, forstjóri Sensa.

 

Tengt efni

Sensa í samstarf við Juniper 

Sensa hefur endurnýjað samstarf sitt við Juniper. Með samstarfinu styrkir Sensa enn frekar vöru- og þjónustuframboð sitt á sviði netlausna og mætir vaxandi eftirspurn eftir

Nánar