Árleg verðlaunaafhending Fortinet fór fram fyrr í mánuðinum þar sem samstarfsaðilar fyrirtækisins voru heiðraðir fyrir framúrskarandi árangur á liðnu ári. Þar var Sensa útnefnt OT Partner of the Year en viðurkenningin er veitt þeim samstarfsaðila sem skarar fram úr í sölu, innleiðingu og þjónustu á OT-öryggislausnum (Operational Technology) og hefur sýnt fram á djúpa þekkingu og sterka stöðu á sviði netöryggis í iðnaðar- og rekstrarumhverfi.
Auk fyrirtækjaverðlaunanna hlutu tveir starfsmenn Sensa einstaklingsviðurkenningar fyrir framúrskarandi framlag sitt:
- Bergsteinn Kristján Árnason var valinn Systems Engineer of the Year fyrir víðtæka og djúpa tæknilega þekkingu á lausnum Fortinet og öflugan stuðning við viðskiptavini.
- Óskar Sæmundsson var valinn Account Manager of the Year fyrir framúrskarandi árangur í ráðgjöf og þjónustu við viðskiptavini.
Viðurkenningarnar þrjár endurspegla sterka stöðu Sensa á sviði netöryggis og hefur Sensa byggt upp öfluga þekkingu og reynslu sem nýtist íslenskum fyrirtækjum og stofnunum í að efla stafrænt öryggi og rekstraröryggi.



