skýjaVIST
Öruggt auðkenni
SkýjaVIST og Skýjaþjónusta Sensa er hagkvæm og einföld leið til að nýta kosti Office 365 og annarra skýjaþjónusta á einfaldan og þægilegan máta.
Hvað er Office 365?
Aðgengi að gögnum hvar og hvenær sem er. Nýjasta útgáfan af Office, tölvupóstur og gagnavistun í skýinu ásamt samskiptalausnum og ótal öðrum nýjungum sem auðvelda vinnuna. Allur helsti hugbúnaður Microsoft í mánaðaráskrift.
Hvað er skýjaVIST?
Hagkvæm og einföld leið til að nýta kosti Office 365 og annarra skýjaþjónusta samhliða öðrum kerfum sem nauðsynleg eru í starfsemi fyrirtækja og stofnana. Með skýjaVIST Sensa færð þú öruggt auðkenni sem gengur að öllum þínum kerfum. Þú ræður hvar þú hýsir hvað – hjá Microsoft, Amazon Web Services, innanlands hjá okkur, eða jafnvel í þínum eigin vélasal.
Hvernig getur Sensa aðstoðað?
Sérfræðingar Sensa aðstoða þig ekki bara við að móta framtíðarstefnu í skýjalausnum, heldur hjálpum við þér að komast þangað. Skýjateymi Sensa býður upp á ráðgjöf, námskeið og fyrsta flokks þjónustu.
- skýjaVIST hjálpar þér að leysa „allt hitt“ og uppfylla öryggiskröfurnar líka.
- Fyrirfram þekktur mánaðarlegur kostnaður niður á starfsmann.
- Lausnin er mjög sveigjanleg og þú greiðir eingöngu fyrir það sem þú notar.
- Betri yfirsýn yfir Office hugbúnað hjá fyrirtæki þínu (hver er að nota hvað).
- Starfsmenn geta verið í mismunandi útgáfum af Office 365 eftir þörfum.
- Lausnin lagar sig að þér og þínum þörfum og auðvelt er að fjölga/fækka leyfum milli mánaða.
- Með Office 365 færðu aðgang að gögnum þínum hvar og hvenær sem er. Hægt er að treysta á að gögnin séu geymd á öruggum stað.
- Sjálfvirkar uppfærslur og ert því alltaf með nýjustu útgáfu hverju sinni.
- Skýjateymi Sensa veitir þér fyrsta flokks þjónustu.
Með skýjaVIST færð þú:
- Office 365 með þjónustu Sensa
- Eitt auðkenni fyrir öll þín kerfi
- Aðstoð við að uppfylla öryggiskröfur (FME, ISO)
- Tengingar við aðrar skýjaþjónustur
- Afritun, innanlands vistun gagna/kerfa og fleira
- Aðgang að fjölda viðbótarlausna
AD – öruggt auðkenni
Active Directory er miðlæg auðkenningarþjónusta (single sign on) og samræmir öryggisstillingar fyrir allt fyrirtækið. Windows uppfærslur eru uppfærðar miðlægt. AD fylgir skýjaVIST.
Skráarsvæði hjá Sensa
Hefðbundið skráarsvæði (drif) fyrir skjöl (t.d. Word, Exel, Power Point) sem nýtir miðlæga auðkennisþjónustu (AD) fyrir aðgangsheimildir að gögnum. Skráarsvæði fylgir skýjaVIST.
Fjarvinnutenging
Möguleiki er á fjarvinnutengingu, annað hvort með Direct Access eða VPN.
Vírusvörn
Vírusvörn fyrir útstöðvar fylgir öruggu auðkenni í skýjaVIST.
Afritunarlausnir
Afritun af skráarsvæði er innifalin í 42 daga. Langtímaafritun er skilgreind eftir þörfum viðskiptavinar (ekki innifalið í skýjaVIST). Boðið er uppá að afrita gögn milli skýjaþjónustuaðila eða í gagnaver Sensa.
Tölvupóstur - hýst hjá Sensa
Tölvupóstur hýstur á miðlægum Exchange þjóni hjá Sensa.
Viðbótarlausnir
Sjáumst myndfundaþjónusta
Sjáumst myndfundaþjónusta Sensa kemur á fjarfundi milli samstarfsaðila eða viðskiptavina hvar og hvenær sem er, með hvaða tölvu/síma sem er. Frekari upplýsingar er að finna á: www.sjaumst.is
Álagsdreifing (e. Load balancing) þjónusta
Álagsdreifi fyrir net, örgjörva og minni til að fullnýta miðlæga þjóna og tæki. Skoðast sérstaklega fyrir hvert kerfi fyrir sig.
Sýndarvélar (VM´s)
Vélar sem keyra eingöngu á hugbúnaði. Hægt er að kaupa eftir þörfum sýndarþjóna sem keyra sérkerfi fyrirtækisins.
SQL gagnagrunnsþjónusta
Samnýttir SQL gagnagrunnar og þjónusta við þá. Í stað þess að keyra eigin SQL þjón er hægt að kaupa sig inn á samnýttan þjón þegar við á, eða þörf er á.
Vefhýsing
Hýsing á léni og vef fyrir fyrirtæki.
Sérkerfi
Hægt er að hýsa fjárhagskerfi og önnur kerfi fyrir viðskiptavini á sérþjónum tengdum við skýjaVIST.
Aðrar skýjaþjónustur
skýjaVIST býður uppá tengingar við aðrar skýjaþjónustur svo sem Amazon Web Services (AWS), Azure og Cisco.