Hýsing tölvubúnaðar
Komdu með búnaðinn til Sensa
Sensa rekur fyrsta flokks tölvusali sem leigðir eru út til viðskiptavina (e. colocation). Annar er í Verne, Reykjanesbæ og hinn í Reykjavík. Hvort sem þú vilt eingöngu aðgengi og sjá um reksturinn sjálfur eða að við sjáum um tenginguna sem og daglegan rekstur, þá höfum við lausnina fyrir þig. Við tökum við stökum hýslum, netbúnaði eða heilu tölvusölunum, allt eftir þínum þörfum.
Vottað umhverfi
- ISO27001:2013
- Tier 3 samhæft
- SSAE16 Type 2
- PCI & HIPAA samhæft
- PUE 1.2
Fjölbreyttir tengimöguleikar
Hýsingarnet Sensa
Í boði eru tengingar við hýsingarnet Sensa þar sem við getum hleypt þér beint út á internetið, tengt þig við samnýttan eldvegg eða inní okkar eigin net og tengt þig við aðrar þjónustur Sensa. Tengingar á milli vélasala A og B eru einnig í boði í gegnum tengingar Sensa.
Eigin tengingar
Þú getur mætt með eigin tengingar sem við aðstoðum þig við að koma upp.
Innlend fjarskiptafélög
Flest innlend fjarskiptafélög eru með viðveru í gagnaverum Sensa og bjóða uppá tengingar. Sensa getur aðstoðað við uppsetningu og stillingu á tengingum sé eftir því óskað.
Erlend fjarskiptafélög
Í Verne eru fjölmörg erlend félög (s.s. Colt, Level3, Century Link, BT) með starfsemi og bjóða upp á tengingar beint út úr landinu. Sérfræðingar Sensa geta aðstoðað þig við að finna tengileiðina sem hentar þínum þörfum.
Öruggt og sveigjanlegt
Auðvelt aðgengi að annarri þjónustu
Með því að koma í hýsingu til Sensa opnast fjölbreytt þjónustuframboð. Tengingar við hýsingarnet Sensa verða einfaldar sem gefur möguleika á aðgengi að samnýttum auðlindum s.s. gagnageymslum, sýndarvélum og skýjaþjónustum.
Öruggt umhverfi
Vélasalir Sensa eru búnir nýjum og öflugum kælibúnaði og varaaflgjöfum. Myndavélaeftirlit skráir allar hreyfingar og atvik sem eiga sér stað ásamt því sem raka-, hita- og hreyfiskynjarar fylgjast stöðugt með öllum umhverfisþáttum. Öryggisvakt er allan sólarhringinn (24/7/365).
Sérfræðiþjónusta
Sérfræðingar
Sérfræðingar Sensa eru þér ávallt innan handar, reiðubúnir að aðstoða og veita ráðgjöf um allt frá vélbúnaði, netkerfum og afritunarlausnum yfir í skýjalausnir, netöryggi og gervigreind.
Tækniborð Sensa
Tækniborð Sensa er á vaktinni 24/7/365 og getur aðstoðað þig. Hvort sem þú kallar eftir aðstoðinni eða við höfum búnaðinn þinn í fyrirbyggjandi eftirliti. Þú ræður ferðinni.