Skip to content

Aðventuboð Sensa og styrkur til Einstakra Barna

Árlegt aðventuboð Sensa var haldið hátíðlega síðastliðinn fimmtudag og var vel mætt af bæði starfsfólki og viðskiptavinum fyrirtækisins. Aðventuboðið hefur verið fastur liður í aðdraganda jóla hjá Sensa og skapað vettvang fyrir góða samveru og tengslamyndun.

Í ár hélt Sensa áfram þeirri hefð sem tekin var upp í fyrra, að veita styrk til góðgerðarmála í nafni viðskiptavina í stað þess að senda konfekt á skrifstofur. Að þessu sinni hlaut styrkinn Einstök Börn, samtals 1.000.000 kr. Tóku Guðrún Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Einstakra Barna, og Ágúst Kristmannsson, varaformaður, á móti styrknum og þökkuðu stuðninginn innilega.

„Aðventuboðið er liður í því að hitta okkar fólk og eiga gæðastund saman, þakka fyrir samstarfið á árinu og horfa björtum augum fram á við. Einnig er það mjög gefandi og hátíðlegt að gefa til góðgerðarmála í nafni Sensa og viðskiptavina,“ segir Guðmundur Stefán Björnsson, framkvæmdastjóri Sensa.

Aðventuboðið tókst afar vel og skapaði hlýlega og jákvæða stemningu í anda jólanna.

Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna til okkar og hlökkum til samstarfsins á nýju ári.

Tengt efni

Sensa í samstarf við Juniper 

Sensa hefur endurnýjað samstarf sitt við Juniper. Með samstarfinu styrkir Sensa enn frekar vöru- og þjónustuframboð sitt á sviði netlausna og mætir vaxandi eftirspurn eftir

Nánar