- LAUSNIR OG ÞJÓNUSTA
- UM SENSA
- FYRIRTÆKIÐ
- MANNAUÐUR
- HAFA SAMBAND
- English
Menu
Fyrir tíu árum voru t.d. tölvuský ný á nálinni en í dag eru nánast öll fyrirtæki farin að nýta sér “skýið” að stórum hluta í sínum rekstri.
Möguleikarnir í skýjavegferðinni ansi margir. Sérfræðingar Sensa aðstoða fyrirtæki á hverjum degi við að velja “réttu” lausnina og hrinda henni í framkvæmd.
Á fyrstu UTmessunni hélt þáverandi framkvæmdastjóri sprotafyrirtækisins Greenqloud einmitt fyrirlestur sem fjallaði um þörfina á umhverfisvænum tölvuskýjum. Í dag er þetta sprotafyrirtæki orðið hluti af stórfyrirtækinu NetApp sem sérhæfir sig m.a. í skýjalausnum í samvinnu við alla stærstu þjónustuaðila heims, eins og AWS, Azure og Google.
Sérfræðingar Sensa og Netapp í skýjalausnum verða á Sensa básnum sem og sérfræðingar frá öryggis-fyrirtækjunum mnemonic og PaloAlto.
Prófaðu Skýjamælinn okkar:
Hversu langt ert þú kominn í skýjavegferðinni?
Er þitt fyrirtæki farið að lifa drauminn?
Við höfum einfaldað fyrirtækjum af öllum stærðum flutninginn í Microsoft skýið.
Við innleiðum Teams, Power BI, Power Automate, Power Apps og öll hin skemmtilegu O365 tólin.
Endilega spjallaðu við sérfræðinga okkar á
Sensa básnum!
Við mælum sérstaklega með eftirfarandi fyrirlesurum á föstudeginum:
Jón Þorgrímur Stefánsson, eða Jónsi í NetApp, verður einn af fjórum aðalræðumönnum UTmessunnar í ár. Fyrirlesturinn hans, From Zero to Fivehundred, lýsir því hvernig nýsköpunar-fyrirtæki eins og Greenqloud varð mikilvæg deild í Fortune 500 fyrirtækinu NetApp. Svo sannarlega fyrirlestur sem ekki má missa af.
Eldborg kl. 9:15
Thomas Astin Jensen, hjá Nutanix, ætlar að horfa til framtíðar og skoða þær áskoranir sem gagnaver eru að glíma við í dag. Hvað þurfum við að gera til að vera viðbúin nýjum áskorunum?
Silfurberg A kl. 14:10
Jonatan Wentzel, hjá Red Hat, heldur fyrirlestur um starfsmannamál innan upplýsingatæknigeirans. Það eitt að ráða inn sérfræðinga getur verið erfitt en að halda þeim getur því miður oft reynst erfiðara.
Eldborg kl. 10:35
Ómar Örn Magnússon hjá Sjálfvirkni.is skoðar hvernig hægt er að nota innbyggða gervigreind Office 365 til að greina gögn úr lífinu eins og sniglapóst, tölvupóst, sms, bankagögn og fleira til að búa til ævisögu fyrir t.d. rithöfund eða greina vandamál í rekstri lífsins.
Silfurberg A kl. 16:00
Talið er að um 50% af tölvuvírusum komi með tölvupósti. Samskipti með tölvupósti, smáskilaboðum og öðrum samfélagsmiðlum þurfa að vera varin hvar sem við erum.
Öruggt aðgengi hvar sem þú ert. Lykillinn er að vernda aðgengi að gögnum og forritum um leið og áhersla er lögð á einfaldleika fyrir notendur.