Samstarfsaðilar
Sensa á í nánu samstarfi við hina ýmsu framleiðendur búnaðar og lausna á sviði upplýsingatækni.
Sensa hefur áunnið sér hinar ýmsu vottanir frá okkar samstarfsaðilum sem sýna fram á hæfni og þekkingu í viðkomandi lausn.
Cisco - Gold Partner
Cisco Gold Certified gefur til kynna þekkingarstig innan fyrirtækisins.
Átta sérfræðingar Sensa hafa náð hinni torfengnu CCIE (Cisco Certified Internetworking Expert) gráðu, sem er ein sú eftirsóttasta í netheiminum.
Sensa er vottað sem Gold Integrator Partner hjá Cisco sem er ein æðsta vottun sem Cisco veitir sínum samstarfsaðilum. Vottunin staðfestir þekkingu og hæfni fyrirtækisins, ásamt að ferlar og vinnubrögð uppfylla strangar kröfur Cisco. Það er m.a. sannreynt í árlegri úttekt sem Cisco lætur framkvæma hjá Sensa.
Fyrir viðskiptavini Sensa, tryggir þetta, að kjör á búnaði verða þau bestu sem völ er á og aðgangur á tæknilegri þekkingu er mjög góður.
Þar sem mjög strangar kröfur eru gerðar varðandi ferla og gæðistýringu Gold Integrator Partner Certified fyrirtækja, tryggir þessi staða að viðskiptavinir Sensa eru að fá vottaða þjónustu. Gold Partner Certification gerir kröfu á Sensa að hafa hátt þekkingarstig (lágmark 4 x CCIE og sérþekkingu á ákveðnum sviðum netlausna), og að rekstur, ferlar og gæði þjónustu sé skv. ströngustu kröfum.
Microsoft - Gold Partner
Sensa er gullvottaður samstarfsaðili Microsoft á Íslandi (e. Gold Certified Partner). Sensa er því talinn til þeirra samstarfsaðila sem standa fremstir í þjónustu og stuðningi við þær lausnir sem Microsoft býður upp á. Gullvottun er aðalsmerki góðrar þjónustu og um leið staðfesting á þeirri miklu þekkingu, reynslu og eldmóði sem starfsmenn Sensa búa yfir.
NetApp - Preferred Partner
Sensa fékk fyrst Gold Partner vottun hjá NetApp 2011 og hefur síðan bætt við sig þekkingu og markaðshlutdeild og er nú viðurkennt sem Star Partner sem er æðsta viðurkenning samstarfsaðila NetApp á heimsvísu. Þá er Sensa líka Cloud Preferred Partner hjá NetApp.
NetApp er leiðandi í framleiðslu á gagnageymslum (e. Storage) og bíður upp á einstakar lausnir á þessu sviði.
NetApp diskalausnir skila auknu hagræði og nýtingu á diskaplássi með einstökum eiginleikum sem mæta kröfum fyrirtækja um sveigjanleika, hagræði auk möguleika til vaxtar.
Rubrik
Öryggi og verndun gagna er aðaláhersla Rubrik. Skipulögð endurheimt gagna og forrita gerir það að verkum að gögnin eru alltaf tilbúin til notkunar ef eitthvað kemur upp á.
AvePoint
AvePoint sérhæfir sig í afritun og umsýslu gagna í Microsoft 365.
Meira en 16.000 viðskiptavinir og 7 milljónir skýjanotendur um heim allan treysta AvePoint til að afrita, stjórna og vernda þeirra netumhverfi hvort sem í skýinu eða ekki.
Arctic Wolf
Arctic Wolf býður upp á öfluga netöryggisvernd sem er sérsniðin að þörfum fyrirtækja. Fyrirtækið rekur öfluga miðlæga öryggisvöktun (SOC) sem er mönnuð allan sólarhringinn.
Arctic Wolf greinir öryggisógnir hratt og bregst við í rauntíma. Með því að nýta sér gagnagreiningu, vélnám (e. machine learning) og flókna ferla við vinnslu atburða veitir Arctic Wolf yfirsýn sem þarf til að sjá heildarmyndina við öryggisógnir í rauntíma.
Fortinet
Expert Partner
Fortinet er með hagkvæmar lausnir í netbúnaði, öryggi og þráðlausum búnaði. Sensa er með hæstu stöðu samstarfsaðila, Expert Partner, með mikla sérfræðiþekkingu á Fortinet lausnum.
DUO
Cisco DUO er skýjaþjónusta sem býður margþátta auðkenningu. DUO virkar ofan á hefðbundna auðkenningu (s.s. lykilorð eða AD auðkenningu) og vinnur með kerfum fyrirtækja.
Nutanix
Nutanix býður eina hugbúnaðlausn sem gengur þvert á önnur skýjaumhverfi og gerir skilin á milli einka, almennings og dreifðra skýja ósýnileg.
Vmware – Enterprise Service Provider
Vmware býður upp á eitt fullkomasta sýndarvæðingarumhverfi sem til er. Sensa er Vmware Enterprise Service Provider og er auk þess með sérhæfingu á Infrastructure Virtualizaton lausnum frá Vmware.
F5 – Gold Partner
F5 býður upp á lausnir til að vernda gögnin þín.
Palo Alto – Platinum Partner
Palo Alto er leiðandi í eldveggjalausnum sem og öðrum öryggislausnum.
Amazon Web Services
Sensa er fyrsta vottaða Consulting Partner fyrirtækið á Íslandi hjá Amazon Web Services (AWS). AWS er einn stærsti og elsti skýjaþjónustuaðili í heiminum.
Red Hat
RedHat er einn stærsti Linux framleiðandi í heimi.
mnemonic
Sensa er gull samstarfsaðili norska fyrirtækisins mnemonic, sem hjálpar fyrirtækjum að greina öryggisógnir, vernda gögn og verjast netárásum.
Acronis
Sensa er platinum samstarfsaðili Acronis en lausnir Acronis eru grunnurinn að Cloud Backup þjónustuframboði Crayon Group sem Sensa rekur um heim allan.