Sensa hefur gert viðeigandi ráðstafanir í sínum innviðum sem og í umhverfi viðskiptavina sem eru í rekstri eftir að Log4j veikleikinn kom upp fyrir viku síðan.
Sensa hefur sett upp eftirlit með ákveðinni nethegðun sem getur gefið til kynna hvort verið sé að leita eftir veikleikanum. Við munum halda áfram að skanna umhverfi viðskiptavina og aðstoða með verkefni vegna veikleikans.
Ef einhverjar spurningar vakna vinsamlegast hafið samband í síma 425 1700 eða sendið tölvupóst á hjalp@sensa.is.