Skip to content

Sensa styrkir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna

Sensa hefur um árabil haldið í hefðir. En nú kemur að því að hefðir breytast og í ár ætlum við að breyta einni hefð og hefja nýja. Við höfum tekið ákvörðun um að gefa jólagjafir í nafni viðskiptavina Sensa í góðgerðarmál. Börn og unglingar eru ofarlega í huga þegar kemur að styrktarmálum hjá Sensa og hlýtur Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna 1.000.000 krónur í styrk. Við kunnum okkar viðskiptavinum miklar þakkir fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða og óskum ykkur gleðilegra jóla.

Frá Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna:

SKB styður börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra en 12-14 börn greinast með krabbamein á Íslandi á ári. Þegar það gerist verður öll fjölskyldan fyrir áfalli og þarf á stuðningi að halda. 

SKB greiðir fyrir ýmiss konar stuðning, s.s. sálfræðimeðferðir, sjúkraþjálfun, almenna heilsurækt og endurhæfingu, en býður líka upp á félagsstarf og jafningjastuðning fyrir foreldra barna í krabbameinsmeðferð og margskonar félagsstarf og dægrastyttingu.

Við þökkum kærlega fyrir myndarlegan styrk sem mun nýtast til að styrkja börn í aðstæðum sem enginn vill vera í. 

Tengt efni

Val á netbúnaði

Blogg Val á netbúnaði Hörður Jóhannsson Leiðtogi þráðlausra netlausna 22. júní 2026 Sumarið er yndislegt, sumarfrí, ís, dagsljós nánast allan sólarhringinn, meiri ís og svo

Nánar

Sensa styður Bergið headspace

Sensa hefur gert samstarfssamning við Bergið headspace, sem sérhæfir sig í að veita börnum og ungmennum aðgengi að gjaldfrjálsri sálfræðiþjónustu. Markmiðið er að styrkja starfsemi

Nánar